Bluetooth Headset BH 108 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Áður en rafhlaðan er hlaðin skaltu lesa
vandlega „Upplýsingar um rafhlöðu og
hleðslutæki“.

Viðvörun: Aðeins skal nota
hleðslutæki sem Nokia hefur
samþykkt til notkunar með

þessari tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar
gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið
niður og slíkri notkun getur fylgt hætta.
Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur
valdið eldhættu, sprengingu eða haft
aðra áhættu í för með sér.

Þegar aukabúnaður er tekinn úr
sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

1. Stingdu hleðslutækinu í samband

við innstungu.

2. Tengdu snúru hleðslutækisins við

tengið. Rauða stöðuljósið logar
meðan á hleðslu stendur. Það getur
tekið allt að 2 klukkustundir að
hlaða rafhlöðuna að fullu.

3. Græna stöðuljósið logar þegar

rafhlaðan er fullhlaðin.
Hleðslutækið er fyrst tekið úr
sambandi við höfuðtólið, síðan
úr rafmagnsinnstungunni.

background image

ÍSLENSKA

Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að
5 klukkustundir í tali eða allt að
120 klukkustundir í biðstöðu.

Staða rafhlöðunnar þegar höfuðtólið
er ekki tengt við hleðslutæki er
könnuð með því að ýta á valtakkann
þegar höfuðtólið er tengt við farsíma.
Ef stöðuljósið er grænt er rafhlaðan
nægilega hlaðin. Ef ljósið er gult gæti
þurft að hlaða rafhlöðuna bráðlega.
Ef ljósið er rautt skaltu hlaða
rafhlöðuna.

Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur
höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna
fresti og rauða stöðuljósið blikkar.