Bluetooth Headset BH 108 - Kveikt og slökkt

background image

Kveikt og slökkt

Kveikt er á höfuðtólinu með því að
halda valtakkanum inni í um
2 sekúndur. Höfuðtólið gefur þá frá
sér tón og græna stöðuljósið logar.
Höfuðtólið reynir að tengjast við
tækið sem var notað síðast. Þegar
höfuðtólið er tengt við tæki og er

tilbúið til notkunar blikkar græna
stöðuljósið rólega. Hafi höfuðtólið
ekki verið parað við neitt tæki fer
það sjálfkrafa í pörunarham.

Slökkt er á höfuðtólinu með því
að halda valtakkanum inni í um
5 sekúndur. Höfuðtólið gefur þá frá
sér tón og rauða stöðuljósið logar
í stutta stund. Ef höfuðtólið er ekki
tengt við tæki innan u.þ.b. 30 mínútna
slekkur það sjálfkrafa á sér.