Bluetooth Headset BH 108 - Höfuðtólið parað og tengt

background image

Höfuðtólið parað og tengt

Para þarf og tengja höfuðtólið við
samhæft tæki áður en hægt er að
nota það.

Hægt er að para höfuðtólið við allt að
átta tæki en aðeins er hægt að tengja
það við eitt tæki í einu.

1. Gakktu úr skugga um að kveikt

sé á tækinu og að slökkt sé
á höfuðtólinu.

background image

ÍSLENSKA

2. Kveiktu á höfuðtólinu til að para

það við tæki ef það hefur ekki
verið parað áður. Kveikt er
á pörunarstillingunni og græna
stöðuljósið blikkar rólega.

Ef höfuðtólið hefur áður verið
parað við tæki skaltu gæta þess að
slökkt sé á höfuðtólinu, og halda
síðan valtakkanum inni í u.þ.b.
5 sekúndur þar til græna
stöðuljósið fer að blikka hratt.

3. Kveiktu á Bluetooth í símanum

eftir u.þ.b. 3 mínútur og láttu leita
að Bluetooth-tækjum. Nánari
upplýsingar er að finna
í notendahandbók tækisins.

4. Veldu höfuðtólið af listanum yfir

þau tæki sem fundust.

5. Sláðu inn lykilorðið 0000 til að

para og tengja höfuðtólið við
farsímann. Í sumum tækjum gæti
þurft að koma tengingunni á að
pörun lokinni.

Þegar höfuðtólið er tengt við tækið
og er tilbúið til notkunar blikkar
stöðuljósið rólega í grænum lit.

Til að tengja höfuðtólið handvirkt við
tækið sem var notað síðast heldurðu
valtakkanum inni í um 2 sekúndur
eða kemur á tengingu í Bluetooth-
valmynd tækisins.

Hugsanlega er hægt að stilla tækið
þannig að höfuðtólið tengist því
sjálfkrafa. Í Nokia tækjum er þessi
möguleiki virkjaður með því að
breyta stillingum fyrir pöruð tæki
í Bluetooth-valmyndinni.

background image

ÍSLENSKA