Bluetooth Headset BH 108 - Stillingum eytt eða endurstillt

background image

Stillingum eytt eða endurstillt

Til að eyða öllum stillingum
höfuðtólsins slekkurðu á því og heldur
valtakkanum inni í um 8 sekúndur.
Höfuðtólið gefur þá frá sér tvo tóna
og rauða og græna stöðuljósið blikkar
til skiptis. Þegar búið er að eyða
stillingunum fer höfuðtólið
í pörunarstillingu.

Ef höfuðtólið hættir að virka þótt það
sé fullhlaðið skaltu endurstilla það
með því að stinga því í samband við
hleðslutækið á meðan þú heldur
valtakkanum inni.